Sigurður Skúlason​

Sigurður starfaði mikið hjá Ríkisútvarpinu alla sína starfsævi við leik og upplestur og lék nokkur hundruð hlutverk í Útvarpsleikhúsinu.

Hann leikstýrði einnig leikritum fyrir Útvarpsleikhúsið, m.a. eftir Sofokles, Goethe, Bertholt Brecht, J.B. Priestley, Jean Paul Sartre, James Saunders, Fay Weldon og Brian Clark.

Auk þess fékkst hann við dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið um áratugaskeið ('69 -'09) og fjallaði þar um menn og málefni af ýmsu tagi, s.s. Nadine George og Roy Hart; Leonard Cohen; John Lennon; J.B.Priestley; Vesalingana og Victor Hugo; Vini hinnar búddísku reglu á Vesturlöndum (Friends of the western buddhist order); Tónlist í leikhúsi; Sænska sirkusleikhúsið – Við erum þúsundir; Maxím Gorki og Móðurina; Chaplin; Arja Saijonmaa; Íslensku revíuna; John Reed og tíu daga sem skóku heiminn; Finnska leikhúsið Kom; Líföndun; Jack Kornfield og bók hans Um hjartað liggur leið.

Blindingsleikur 1970
Blindingsleikur 1970
Ævintýri Múmínpabba 1987
Ævintýri Múmínpabba 1987
Sæfarinn 1985
Sæfarinn 1985
Sólborgarmál 1986
Sólborgarmál 1986
Oddrúnarmál 1986
Oddrúnarmál 1986
Spor í sandi 1987
Spor í sandi 1987
Goggi, Siggi, Hreinsi, samverkamenn í útvarpi og víðar um langan aldur.